Dintelborg kom til Húsavíkur í dag

 IMO 9163685. Dintelborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025.

Hollenska flutningaskipið Dintelborg kom til Húsavíkur í dag með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka.

Skipið var smíða hjá Van Diepen Shipyard í Waterhuizen í Hollandi árið 1999 og er 6,235 GT að stærð. Skipið er 133 metra langt og breidd þess er 14 metrar.

Skipið hét upphaflega Dintelborg en árin 2001 – 2004 hét það Msc Dardanelles en fékk sí’an aftur sitt fyrra nafn.

Dintelborg siglir undir hollensku flaggi með heimahöfn í Delfzijl.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd