
Vörður ÞH 44 kom í gærmorgun til löndunar í Grindavík. Aflinn var um 140 kör eftir tæpa tvo sólarhringa á veiðum.
Jón Steinar tók þessar myndir af Verði sem hélt út aftur að löndun lokinni.
Jón Steinar bendir á að þessi löndun sé nokkuð sérstök hjá Verði því þetta er hans fyrsta löndun í Grindavík síðan 7. nóvember 2023.
Heimahöfn Gjögursskipanna er Grenivík en Vörður og Áskell eru heimavanir í Grindavík þaðan sem Gjögur hefur gert út í áratugi.




Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution