Arnarborg HU 11

686. Arnarborg HU 11 ex Arnarborg KE 26. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson.

Arnarborg HU 11 liggur hér við bryggju á Skagaströnd um árið en Hólanes hf. keypti bátinn þangað árið 1986.

Upphaflega hét báturinn, sem smíðaður var í Danmörku árið 1958, Hafnarey SU 110 með heimahöfn á Breiðdalsvík.

Báturinn var 78 brl. að stærð og átti eftir að bera nöfnin Mummi II GK 21, Mummi GK 120, Dyrhólaey GK 19 Jón Freyr SH 114 og Arnarborg KE 26 áður en Hólanes keypti hann.

Arnarborg HU 11 var brennd á áramótabrennu á Skagaströnd 1993.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd