
Narfi SU 680 var smíðaður í Trefjum í Hafnarfirði árið 2001 og var af gerðinni Cleopatra 31.
Myndin var tekin sumarið 2004 en síðar sama ár var báturinn seldur til Húsavíkur þar sem hann fékk nafnið Auður Þórunn ÞH 344.
Sumarið 2007 keypti Útgerðarfélag Bolungarvíkur ehf. bátinn og nefndi Björgmund ÍS 49 en ári síðar var hann seldur úr landi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution