
Hafborg SI 4 kemur hér að landi á Siglufirði sumarið 2012 en báturinn er af Gáskagerð frá Bátasmiðjunni Mótun.
Upphaflega hét báturinn, sem smíðaður var árið 2001, Þröstur II ÞH 347 með heimahöfn á Raufarhöfn.
Árið 2005 var hann seldur til Siglufjarðar og fékk það nafn sem hann ber á myndinni. Það hét hann til ársins 2020 er hann fékk nafnið Sandvík KE 79.
Frá árinu 2022 hefur báturinn borið nafnið Vonon NS 41 með heimahöfn á Bakkafirði.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.