
Happasæll KE 94 lætur hér úr höfn í Keflavík en það var hans heimahöfn um árabil.
Upphaflega hét báturinn Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði, smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk As í Noregi 1963 fyrir Varðarútgerðina hf á Stöðvarfirði.
Báturinn sem er 179 brl. að stærð hefur heitið eftirfarandi nöfnum í gegnum tíðina:
Heimir SU, Mímir ÍS, Hafaldan SU, Ásgeir Magnússon GK, Árni Geir KE, Happasæll KE, Sædís HF, Mímir ÍS, Sædís ÍS, Grímsnes GK, Grímsnes HU, Grímsnes GK Grímnes BA og Grímsnes GK.
Eldur kom upp í bátnum við bryggju í Njarðvík árið 2023 og fór hann í brotajárn eftir það.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution