Faxi RE 241

1048. Faxi RE 241 ex Fífill GK 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Loðnuskipið Faxi RE 241 kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið en það var Faxamjöl hf. sem gerði hann út.

Faxi hét upphaflega Fífill GK 54 og var smíðaður árið 1967 í Noregi fyrir Einar Þorgilsson & co hf. í Hafnarfirði.

Nánar tiltekið hjá Kaarbös Mekaniske Verksted í  Harstad.

Fífill GK 54 var 347 brl. að stærð búinn 900 hestafla Wichmann aðalvél. Árið 1974 var skipið lengt og yfirbygg og mældist þá 331 brl. að stærð. 1979 var skipt um aðalvél og kom 1350 hestafla Wichmann í stað þeirrar sem fyrir var.

Í byrjun árs 1990 var Fífill GK 54 seldur Faxamjöli hf. i Reykjavík og fékk hann nafnið Faxi RE 241.

Þegar nýr Faxi RE 9 var keyptur árið 1998 fékk þessi sem hér um ræðir nafnið Faxi II RE 241.

Skipið hefur legið í Reykjavíkurhöfn í rúmlega tvo áratugi og eftirfarandi má lesa á heimasíðu havlaskoðunarfyrirtækisins Eldingar:

Árið 2001 keypti Þorgeir Jóhannsson bátinn og notaði sem flutningaskip fyrir lageldi og nefndi hann Faxi II RE. Skipið var svo keypt af Hvalaskoðun Reykjavík árið 2003 þar sem það fékk aftur sitt upprunalega nafn og því var breytt í landfast hvalaskoðunarsafn, gestamóttöku, kaffiteríu og minjagripaverslun. Síðar var það keypt af Eldingu þegar fyrirtækin sameinuðust.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd