
Hann var hægur og þoka við Skjálfanda í dag þegar hollenska flutningaskipið Dongeborg kom til Húsavíkur eftir siglingu frá El Ferrol á norður Spáni.
Farmur skipsins er hráefni til kísilvers PCC á Bakka en Dongeborg er fyrsta skip ársins með hráefni til PCC.
Dongeborg, sem er 6,205 GT að stærð, var smíðað í Hollandi árið 1999. Lengd þess er 133 metrar og breiddin 16 metrar.
Heimahöfn Dongeborg er Delfzijl.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution