
Þorlákur ÍS 15 er hér á siglingu fyrir vestan sl. sumar en myndina tók Aðalsteinn Árni Baldursson.
Skipið var smíðaður í Póllandi og kom til heimahafnar í Bolungarvík í ágústmánuði árið 2000.
Þorlákur, sem er 29 metrar að lengd, 7,5 metra breiður og 251 brúttótonn að stærð, hefur alla tíð verið gerður út frá Bolungarvík.
Hann var smíðaður sem línuskip búið beitningarvél en síðar útbúið til dragnótaveiða.
Jakob Valgeir ehf. í Bolungarvík er eigandi Þorláks ÍS 15.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution