
Jóna Eðvalds SF 20 sem hér sést í slipp á Akureyri var smíðuð árið 1980 í SIMEK skipasmíðastöðinni í Flekkefjørd Noregi.
Skipið hét Vigilant og var smíðað fyrir skoska útgerð en Skinney-Þinganes keypti það til Íslands árið 1995 og nefndi Jónu Eðvalds.
Jóna Eðvalds SF 20 var 40,56 metrar að lengd og breidd hennar 8,90 metrar.
Vorið 1998 var skipið lengt í Póllandi um tíu metra og fór úr 483 BT í 633 BT.
Þegar ný Jóna Eðvalds SF 200 var keypt frá Hjaltlandseyjum árið 2003 gekk þessi sem hér um ræðir upp í kaupin.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution