Sjóferðir Arnars kaupa bát frá Noregi

Øyglimt ferjan sem Sjóferðir Arnars hafa keypt. Aðsend mynd.

Sjóferðir Arnars á Húsavík hafa keypt bát frá Noregi sem fyrirtækið hyggst nota til hvalaskoðunar á Skjálfanda.

Að sögn Arnars er um að ræða ferju sem Øyglimt heitir og er hún rúmir 20 metrar að lengd og tekur 48 farþega. Hún var úr smíðuð úr plasti árið 1980.

Fyrirtækið hefur frá miðju sumri 2023 gert út hvalaskoðunarbátinn Moby Dick undir merkjum Friends of Moby Dick.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd