
Nonni í Vík SH 89, sem er af gerðinni Sómi 895, hét upphaflega Aðalbjörg Þ BA 399 og var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar árið 2003.
Aðalbjörg Þ hafði heimahöfn á Tálknafirði en var seld þaðan árið 2005. Nánar tiltekið til Grindavíkur þar sem báturinn fékk nafnið Auðbjörg GK 88. Báturinn var lengdur árið 2008.
Frá Grindavík fór báturinn til Ólafsvíkur árið 2010 þar sem hann fékk nafnið Nonni í Vík SH 89.
Árið 2013 keypti Barmur ehf. hann til Húsavíkur og fékk hann nafnið Ásdís ÞH 136.
Ári síðar var báturinn seldur til Hríseyjar þar sem hann fékk nafnið Erla Kristín EA 155 sem hann bar til ársins 2019. Þá fékk hann nafnið Brynja Dís ÍS 290.
Frá árinu 2020 hefur báturinn heitið Nonni SU 36 með heimahöfn á Djúpavogi. Heimild: aba.is
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution