
Netabáturinn Kristinn ÞH 163 frá Raufarhöfn lætur hér úr höfn á Húsavík á marsmánuði árið 2003.
Báturinn var smíðaður á Skagaströnd árið 1990.
Kristinn var seldur í Skagafjörðinn árið 2005 og fékk þá nafnið Hafey SK 10 með heimahöfn á Sauðárkróki.
Það nafn ber hann enn þann dag í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution