Jón afi DA 8

7111. Jón afi DA 8 ex Otur ÍS 45. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010.

Grásleppubáturinn Jón afi DA 8 kemur hér til hafnar á Húsavík þann 12. apríl árið 2010.

Þarna var nýbúið að kaupa hann til Húsavíkur þar sem hann fékk síðar nafnið Eiki Matta ÞH 301.

Báturinn er af Gáskagerð og hefur verið lengdur og dekkaður. Hann var smíðaður árið 1988 í Mótun í Hafnarfirði og hét upphaflega Magnús Árnason SH 380 með heimahöfn í Ólafsvík.

Frá 1990 hefur hann borið nöfnin Ingibjörg SH 174, Ingibjörg EA 596, Andri SH 450, Sólnes ÍS 54, Sólnes HF 54, Atli HF 54, Þórunn Ósk KE 79, Þórunn Ósk GK 105, Otur ST 54, Otur ÍS 45 og árið 2009 fékk hann nafnið Jón Afi DA 8.

Árið 2010 fékk báturinn nafnið Eki Matta ÞH 301 sem hann bar til ársins 2019. Þá fékk hann nafnið Ágústa EA 16 sem hann ber enn þann dag í dag.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd