Ólafur HF 51

2781. Ólafur HF 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009.

Í júnímánuði árið 2009 kom Ólafur HF 51 til Húsavíkur en Karel Karelsson skipstjóri var á hringferð til að kynna þennan nýja bát fyrir útgerðar- og sjómönnum.

Báturinn er af gerðinni Cleopatra 31 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði.

Hann hefur borið nafnið Dufan BA 122 frá árinu 2010 og er með heimahöfn á Bíldudal.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd