Dóri í Vörum GK 358

7346. Dóri í Vörum GK 358 ex Eyrún AK 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Dóri í Vörum GK 358 kemur hér til hafnar í Sandgerði í vor en báturinn er með heimahöfn í Garði.

Upphaflega hét báturinn Haukur EA 27 og var með heimahöfn á Dalvík. Hann var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar árið 1992 og er af Sómagerð.

Árið 1994 fékk báturinn nafnið Bjarmi EA 27 og enn með heimahöfn á Dalvík. Tveim árum síðar var hann kominn á Hornafjörð og hélt nafninuen varð SF 27. Ári síðar var Bjarmi orðinn KE 3 með heimahöfn í Keflavík.

Árin 2000-2005 hét hann Marín ÍS 888, fyrst með heimahöfn á Þingeyri en síðar í Bolungarvík.

Þap var svo árið 2005 sem hann fékk nafnið Eyrún AK153 með heimahöfn á Akranesi en frá árinu 2014 hefur báturinn Dóri í Vörum GK 358

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd