
Gunnar Hámundarson GK 357 kemur hér að landi í Keflavík um árið, ca 1985 eða 6.
Báturinn var með heimahöfn í Garði en hann var smíðaður fyrir Halldór Þorsteinsson ofl. árið 1954.
Gunnar Hámundarson var með smíðanúmer 1 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur og er 53 brl. að stærð
Níels Árni Lund gaf út á dögunum bókina Fólkið frá Vörum í Garði og útgerð Gunnars Hámundarsonar. Þar rekur hann fjölskyldusögu ábúenda í Vörum, einkum útvegsbændanna Halldórs Þorsteinssonar og Kristjönu Pálínu Kristjánsdóttur, og afkomenda þeirra.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution