Snæfugl SU 20

1976. Snæfugl SU 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Snæfugl SU 20 var smíðaður hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Noregi fyrir Skipaklett hf. á Reyðarfirði.

Snæfugl kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Reyðarfirði 24. janúar 1989.

Skipaklettur hf. og Síldarvinnslan sameinuðust árið 2001. 

Um tíma var skipið leigt skosku útgerðarfyrirtæki og bar þá nafnið Norma Mary en haustið 2002 hóf Síldarvinnslan að gera það út og fékk það þá nafnið Barði. 

Síldarvinnslan gerði Barða fyrst út sem frysti- og ísfiskskip en síðar var megináhersla lögð á að frysta aflann um borð. 

Árið 2016 var síðan allur vinnslubúnaður fjarlægður úr Barða og var hann rekinn sem ísfisktogari þar til hann var seldur til Rússlands sumarið 2017.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd