
Máni ÞH 98 kemur hér til hafnar á Húsavík úr línuróðri haustið 2013 en hann var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1988.
Máni hét upphaflega Þjóðólfur ÍS 86 frá Bolungarvík en þaðan var hann seldur til Keflavíkur árið 2004.
Í Keflavík fékk báturinn nafnið Gefjun KE 19 en árið 2006 er báturinn kominn til Grindavíkur þar sem hann fékk nafnið Þorbjörn GK 109 og stuttu síðar Máni GK 109.
Keyptur norður í land árið 2009 af Þórði Birgissyni sem skráði hann fyrst í Hrísey sem Mána EA 36. Árið 2011 er hann skráður Máni ÞH 98 með heimahöfn á Húsavík.
Frá því í ársbyrjun 2023 hefur báturinn heitið Máni DA 68 með heimahöfn í Skarðsstöð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution