Julie kom í dag

IMO 9277307. Julie ex Gures. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Flutningaskipið Julie kom til Húsavíkur í dag og lagðist að Bökugarði þar sem skipað er upp hráefnisfami fyrir kíslilver PCC á Bakka.

Julie, sem kalla má fastagest hér á Húsavík, hafði legið í vari sunnan við Langanes um helgina ásamt Vechtborg sem nú liggur hér framundan víkinni.

Julie, sem siglir undir fána Portúgals með heimahöfn á Madeira, var smíðað í Hollandi árið 2003.

Skipið, sem áður hefur borið nöfnin Gures, Tip Leer og Vossdiep, er 118,55 metrar að lengd. Breidd skipsins er 15,2 metrar og það mælist 4,967 GT að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd