Andrea

2787. Andrea ex Magdelone. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Hvalaskoðunarbáturinn Andrea kmeur hér til hafnar í Reykjavík á dögunum en það er Special Tours sem gera hana út.

Andrea var smíðuð hjá Lindstöls Skips & bätbyggeri A/S í Risør í Noregi árið 1972 og er 299 BT að stærð. Lengd hennar er 34 metrar og breiddin átta metrar.

Upphaflega var Andrea ferja sem sigldi milli Helsingjaeyrar í Danmörku og Helsingjaborgar í Svíþjóð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd