Hafnarröst ÁR 250

249. Hafnarröst ÁR 250 ex Höfrungur II ÁR 250. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Hafnarröst ÁR 250 hét upphaflega Höfrungur III AK 250 frá Akranesi.

Höfrungur III, sem var 267 brl. að stærð, var smíðaður fyrir fyrir Harald Böðvarsson & co á Akranesi árið 1964. Smíðin fór fram hjá skipasmíðastöðinni Kaarbös Mek. Verksted í Harstad í Noregi.

Báturinn var seldur til Þorlákshafnar í nóvember árið 1975 og hélt nafni sínu en varð ÁR 250.

Hann var endurmældur ári síðar og mældist þá 221 brl. að stærð.

Báturinn var yfirbyggður á Siglufirði rétt fyrir 1990. Hann fékk síðar nafnið Hafnarröst ÁR 250 og var að lokum seldur úr landi.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd