
Flutningaskipið Franziska kom að landi við Krossanes á dögunum og tók Haukur Valdimar þessa mynd af því.
Skipið var smíðað í Kína árið 2011 og er 145,6 metrar að lengd. Breidd þess er 18,25 metrar og það mælist 8,059 GT að stærð.
Franziska siglir undir fána Antigua & Barbuda með heimahöfn í St. John´s.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.