
Breki VE 61 hét upphaflega Guðmundur Jónsson GK 475 og var smíðaður árið 1976 í Slipstöðinni á Akureyri.
Skipð var smíðað fyrir Rafn hf. Sandgerði sem fjölveiðiskip en selt til Vestmannaeyja árið 1978.
Það var Samtog hf. sem keypti skipið, sem var 491 brl. að stærð, og fékk það nafnið Breki VE 61.
Breki fór til Póllands í breytingar árið 1988 og fólust þær .m.a í átta metra lengingu.
Meira um það síðar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution