
Sigurbjörg ÁR 67, nýjasta skip Ísfélagsins, landaði í fyrsta skiptið í Vestmannaeyjum í vikunni og tók Tryggvi Sigurðsson þessa mynd þegar hún hélt aftur til veiða í gær.
Sigurbjörg var smíðuð hjá Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul í Tyrklandi og kom til landsins um miðjan júlímánuð.
Skipið er ísfisktogari og er mesta lengd skipsins 48,1 metrar og breidd þess er 14 metrar.
Það er búið fjórum togvindum og með möguleika á þriggja trolla veiðum. Aðalvélin er 1.795 kW.
Sigurbjörg er hönnuð af íslenska skipahönnunarfyrirtækinu Nautic. Sama skrokklag er á skipinu og HB Granda skipunum sem Nautic hannaði upp úr 2015 með svokölluðu Enduro Bow stefni.
Sigurbjörg er styttra og breiðara skip en Akurey, Viðey og Engey.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution