Sævar KE 1

1587. Sævar KE 1 ex Sævar KE 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Sævar KE 1 hét upphaflega Már NS 87 og var smíðaður árið 1981 í Bátalóni í Hafnarfirði.

Báturinn, sem er 26 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Hafnarbakka hf. á Bakkafirði sem átti bátinn í tvö ár.

Árið 1983 var báturinn kominn til Norðfjarðar þar sem hann fékk nafnið Siggi Bjarna NK 87.

Hér má lesa sögu hans en hann heitir Belló BA 13 í dag og er með heimahöfn á Reykhólum.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd