
Flutningaskipið Aberdeen kom til Húsavíkur um kaffileytið með saltfarm en það kom hingað frá Ólafsvík.
Skipið var smíðað í Slóvakíu árið 2009 og hefur áður borið nöfnin Wilson Aberdeen og Stortebeker.
Aberdeen siglir undir fána Luxemborgar og er 2,451 GT að stærð. Lengd skipsins er 88,3 metrar og breiddin er 12,4 metrar.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution