
Sigurþór GK 43 hét upphaflega Árni ÓF 44 og var smíðaður 1975 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd.
Báturinn, sem var rétt tæplega 30 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Árna sf. á Ólafsfirði en árið 1983 er hann seldur til Grindavíkur.
Þar fær hann nafnið Sigurþór GK 43 og er gerður út frá Grindavík til ársins 1991 en þá fékk hann nafnið Vala ÓF 2. Ári síðar varð Vala KE 70 og 1994 var báturinn kominn á Hvammstanga þar sem hann fékk nafnið Bára Björg HU 27.
Árið 1995 fékk báturinn nafnið Jonna SF 12, og það nafn bar báturinn þegar hann fórst 13. október 1996 austur af Skarðsfjöruvita við Meðalland í Vestur Skaftafellssýslu. Með bátnum fórust þrír menn. Heimild aba.is
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution