
Skemmtiferðaskipið Ocean Albatros kom til Húsavíkur snemma í morgun og stoppaði til hádegis.
Skipið var smíðað í Kína og afhent í apríl á síðasta ári. Lengd þess er 104,4 metrar, breiddin 18,4 metrar og það mælist 8,181 GT að stærð.
Skipið siglir undir fána Portúgal með heimahöfn á Madeira.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution