Hagland Progress í Grindavík

IMO 9936343. Hagland Progress. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024.

Norska flutningaskipið Hagland Progress kom til Grindavíkur sl. sunnudag með salt á vegum Saltkaupa til Vísis hf.

Skipið kom með saltið frá Álasundi í Noregi sem er stór umskipunarhöfn fyrir salt.

Hagland Progress var smíðað 2023 hjá Royal Bodewes í Hollandi og er 85 metrar að lengd, 15 metrar á breidd og mælist 3,041 GT að stærð.

Skipið er svokallað hybryd skip líkt og Misje Vita sem var á Húsavík í gær, þau eru að hluta til knúin rafmagni

Hagland Progress er með heimahöfn í Haugasundi.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd