
Flutningaskipið Misje Vita kom til Húsavíkur í gærkveldi eftir siglingu frá Hollandi.
Skipið er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka.
Misje Vita var smíðað á Sri Lanka árið 2022 og siglir undir norsku flaggi. Heimahöfn skipsins er Bergen.
Skipið er 89,5 metra langt, breidd þess er 15,4 metrar og það mælist 3,492 GT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution