Venus HF 519

1308. Venus HF 519 ex Júní GK 345. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Venus HF 519 hét upphaflega Júní GK 345 og var annar í röðinni af stóru Spánartogurunum.

Júní GK 345 kom til heimahafnar í Hafnarfirði á sjómannadaginn árið 1973. Togarinn var smíðaður í skipasmíðastöðinni Astilleros Luzuriaga S. A. í San Juan á Spáni.

Eigandi var Bæjarútgerð Hafnarfjarðar uns Hvalur h/f keypti Júní árið 1986 og fékk hann þá heitið Venus HF 519.

Skipinu var breytt í frystiskip og var síðar lengt og hækkað auk margvíslegra annarra breytinga.

Grandi hf., síðar HB Grandi, keypti Venus árið 2001 og var hann seldur úr landi um miðjan síðasta áratug.

 Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd