Kolbeinsey ÞH 10

1576. Kolbeinsey ÞH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Kolbeinsey ÞH 10 liggur hér við Þvergarðinn í Húsavíkurhöfn en þar var hennar pláss.

Togarinn var smíðaður fyrir Höfða hf. á Húsavík í Slippstöðinni á Akureyri. 

Kolbeinsey var gefið nafn og hún sjósett þann 7. febrúar 1981. Til heimahafnar kom hún 10. maí sama ár. Kolbeinsey var eins og segir í upphafi fyrst í eigu Höfða hf. því næst í eigu Íshafs hf. þá aftur í eigu Höfða hf. og að lokum í eigu Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf.

Kolbeinsey  var 430 brúttórúmlestir að stærð og gerð út á Húsavík til haustsins 1997. Þá var hún seld án kvóta til Bolungarvíkur. Kaupandinn var Þorbjörn-Bakki hf. og fékk hún nafnið Hrafnseyri ÍS 10.

Lesa nánar um Kolbeinsey

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd