
Skemmtiferðaskipið MSC Sinfonia lætur hér úr höfn í Split á dögunum en borgin er önnur stærsta borg Króatíu.
Skipið var smíðað árið 2002 í Frakklandi og bar upphaflega nafnið Europian Dream og síðar Europina Star. Frá árinu 2004 hefur það borið nafnið MSC Sinfonia.
MSC Sinfonia er 275 metrar að lengd, breidd skipsins er 23 metrar og það mælist 58,625 GT að stærð.
Skipið siglir undir fána Panama með heimahöfn í Panamaborg.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.