Vancouverborg kom í kvöld

IMO 9213741. Vancouverborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Hollenska flutningaskipið Vancouverborg kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Bökugarði.

Skipið, sem kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka, siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl.

Vancouverborg var smíðað í Hollandi árið 2001 og er 6.361 GT að tærð. Lengdin er 132 metrar og breiddin 16 metrar.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd