
Farþegaskipið Rotterdam lá við akkeri framundan Húsavík í dag en þetta er stærsta skipið sem komið hefur hingað það sem af er sumri.
Rotterdam er 299,79 metrar að lengd, breidd þess er 35 metrar og það mælist 99,935 GT að stærð.
Skipið var smíðað á Ítalíu og tekið í notkun árið 2021. Það siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Rotterdam.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution