
Loksins rataði Þórsnes SH 109 fyrir linsuna hjá mér, þ.e.a.s á siglingu, en báturinn rak nefið inn í Húsavíkurhöfn í kvöld.
Þórsnesið var keypt frá Noregi og kom til heimhafnar í Stykkishólmi sumarið 2017. Í Noregi bar skipiðð nafnið Veidar 1 M-76-G og var með heimahöfn í Álasundi.
Skipið, sem er 880 brúttótonna línu- og netaskip, 43,3 metrar á lengd og 10,5 metrar á breidd, var smíðað árið 1996.
Eigandi Þórsnes ehf. í Stykkishólmi.




Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution