Bára ÍS 364

1053. Bára ÍS 364 ex Bára SH 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Bára ÍS 364, sem hér liggur við bryggju í Þorlákshöfn um árið, hét upphaflega Kristjón Jónsson SH 77 frá Ólafsvík.

Síðar Kristbjörg ÞH 44 og Kristbjörg II ÞH 244. 1980 fékk báturinn nafnið Skálaberg ÞH 244 og þegar það var selt til Flateyrar fékk það nafnið Jónína ÍS 93. 

Síðan hét báturinn Ver NS, Bára SH, Bára ÍS og Fanney RE. Kannski er ég að gleyma einhverju en alltént er búið að bryja bátinn í spað og urða fyrir allmörgum árum.

Smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1967.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd