
Skemmtiferðaskipið Norwegian Star kom inn á Skjálfandaflóa í morgun og lagðist við festar framundan Húsavíkurhöfn um stund.
Norwegian Star er með stærstu skipum sem koma til Húsavíkur í sumar, mælist 91,740 GT að stærð. Lengd þess er 294,15 metrar og breiddin er 32,8 metrar.
Skipið var smíðað í Þýskalandi árið 2001 og siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í Nassau.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution