Freri RE 73

1345. Freri RE 73 ex Ingólfur Arnarson RE 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Freri RE 73 kemur hér til hafnar í Reykjavík í aðdraganda Sjómanndagsins um árið en það var Ögurvík hf. sem gerði hann út.

Freri hét upphaflega Ingólfur Arnarson RE 201, og var einn stóru Spánartogaranna svokölluðu og sá eini sem er enn í fiskiskipaflotanum.

Hann var smíðaður fyrir Bæjarútgerð Reykjavíkur árið 1973 í Astilleros Luzuriaga S.A. skipasmíðastöðinni í Pasajes de San Juan í Baskalandi.

Ögurvík hf. keypti Ingólf Arnarson RE 210 árið 1985 og gaf honum nafnið Freri RE 73. Honum var í framhaldinu breytt í frystitogara í Slippstöðinni á Akureyri.

Árið 2000 fór Freri RE 73 til Póllands umfangsmiklar breytingar þar sem fólust m.a í því að hann var lengdur um 10 metra og skipt um aðalvél. Togarinn er nú tæplega 79 metrar og í honum er 5000 hestafla Wartsila aðalvél.

Síldarvinnslan hf. festi kaup á Frera RE 73 í júní 2015 og fékk hann nafnið Blængur NK 125.

Eftir að Síldarvinnslan eignaðist Blæng NK 125 fór togarinn í gagngerar endurbætur í Póllandi og ný vinnslulína var sett í hann hjá Slippnum á Akureyri.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd