![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2024/06/1825.jpg?w=1024)
Geiri Péturs ÞH 344 er hér að færa sig til í höfninni eftir skemmtisiglingu á sjómanndag.
Báturinn var smíðaður í Noregi árið 1984 og hét upphaflega Rosvik en Korri hf. á Húsavík keypti hann til landsins sumarið 1987.
Hann var seldur aftur til Noregs árið 1996 þar sem hann fékk nafnið Lysnes. Hann er farinn í brotajárn fyrir einhverjum árum síðan. Báturinn var 182 brl. að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Ùtgerð Geira P var fyrirmyndar útgerð enda miklir öðlingar.
Líkar viðLíkar við