Búðafell SU 90

1940. Búðafell SU 90 ex Rósa HU 294. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Rækjubáturinn Búðafell SU 90 frá Fáskrúðsfirði kemur hér til hafnar á Húsavík um árið en hann hét upphaflega Rósa HU 294 frá Hvammstanga.

Rósa HU 294, sem var 68 brl. aðstærð, var smíðuð hjá Johan Drage A/S, Skipsverft og Mekanisk Verkted í Rognan í Noregi. Hún kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Hvammstanga 4. ágúst árið 1988.

Rósa var keypt til Fáskrúðsfjarðar í desember 1990 þegar Kaupfélag Fáskrúðsfjarðar keypti samnefnt hlutafélag.

Um vorið 1991 kom Búðafell svo til landsins frá Póllandi eftir sex metra lengingu auk fleiri breytinga. Búðafell mældist þá 102 brl/175 BT að stærð.

Lómur ehf. í Hafnarfirði keypti Búðafellið í ársbyrjun 1993 og fékk það nafnið Lómur HF 177.

Lómur HF 177 var seldur til Orkneyja árið 1995 þar sem hann hélt nafni sínu.

Frá 2002 hefur báturinn borið nafnið Budafell og lengi vel verið á Möltu.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd