Hav Nes kom í morgun

IMO 8719097. Hav Nes ex Sava Hill. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Færeyska flutningaskipið Hav Nes kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Norðurgarðinum þar sem skipað verður upp stáli til bryggjugerðar.

Skipið var smíðað í Serbíu árið 1991 og hét áður Sava Hill. Það er 74,65 metrar að lengd og breidd þess er 12,7 metrar. Það mælist 2,026 GT að stærð.

Það siglir eins og áður segir undir Færeysku flaggi og er með heimahöfn í Runavík.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd