![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2024/05/1468.jpg?w=1024)
Hvalaskoðunarbáturinn Sylvía kom til heimahafnar á Húsavík í morgun eftir siglingu frá Stykkishólmi.
Hún hefur verið í Skipavík sl. fimm mánuði þar sem auk venjulegs viðhalds var m.a skipt um aðalvél og vélarrúmið endurnýjað frá A-Ö.
Það er Gentle Giants sem gerir Sylvíu út en hún var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri árið 1976.
Hún hét upphaflega Sigrún ÞH 169 og var með heimahöfn á Grenivík.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution