Stígandi VE 77

1336. Stígandi VE 77 ex Þórður Kristinn HF 40. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Stígandi VE 77 hét upphaflega Tjaldur BA 15 og var annar tveggja báta sem smíðaðir voru í Bátaiðjunni hf. á Patreksfirði.

Bátarnir voru rúmlega 8 brl. að stærð og smíðaðir úr eik og furu.

Tjaldur BA 15 var með heimahöfn á Patreksfirði en árið 1978 hét báturinn Tjaldur ÍS 229 með heimahöfn á Ísafirði. 

Báturinn var með heimahöfn um tíma árið 1983 á Suðureyri en skráður síðar það ár undir sama nafni og númeri á Ísafirði. 

Árið 1987 fékk báturinn nafnið Guðrún KE 20 og heimahöfn Keflavík en tveimum árum síðar var hann kominn til Hafnarfjarðar.

Þar fékk hann nafnið Þórður Kristinn HF 40 sem hann bar til ársins 1991 er hann fékk það nafn sem hann ber á myndinni.

Stígandi VE 77 var afskráður af skipaskrá haustið 1994. Heimild: aba.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd