Brufjell kom í morgun

IMO 9346665. Brufjell ex Damsterdijk. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Norska flutningaskipið Brufjell kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum þar sem skipað er upp hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka.

Brufjell var smíðað í Goa á Indlandi árið 2007 og er 89,95 metra að lengd. Breidd þess er 14,4 metrar og það mælist 2,984.

Skipið, sem áður hét Damsterdijk, er með heimahöfn í Flekkefjord.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd