
Guðmundur Kristinn SU 404 var gerður út frá Fáskrúðsfirði um árabil en eigandi hans var Pólarsíld hf. þar í bæ.
Guðmundur Kristinn SU 404 hét áður Flosi ÍS 15 en upphaflega hét hann Seley SU 10 og var frá Eskifirði. Smíðaður í Flekkefjørd árið 1966.
Seley SU 10 var seld Græði h/f í Bolungarvík í árslok 1972 og fékk nafnið Flosi ÍS 15. Skipið var endurmælt árið 1973 og mældist þá 229 brl. að stærð.
Í desember 1976 kaupa Pólarsíld h/f á Fáskrúðsfirði og Magnús Þorvaldsson á Stöðvarfirði Flosa ÍS 15 og nefna Guðmund Kristinn SU 404. 1979 var skráður eigandi Pólarsíld h/f á Fáskrúðsfirði. (Heimild Íslensk skip)
Guðmundur Kristinn SU 404 var gerður út frá Fáskrúðsfirði eitthvað fram yfir 1990. Eftir að hafa legið í Reykjavík um tíma fékk hann nafnið Kristján RE 110 árið 1998 og fljótlega eftir það sitt síðasta nafn á Íslenskri skipaskrá, Eldhamar GK 13.
Eldhamar GK 13 var seldur til Króatíu árið 2007 þar sem hann fékk nafnið Bibe og er notaður í ferðaþjónustu.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution