Ísfélagið kaupir Pathway

 IMO 9763095. Pathway PD 165. Ljósmynd Karstensens Skibsvært.

Frá því var greint í vikunni að Ísfélagið hefði fest kaup á skoska uppsjávarskipinu Pathway.

Seljandi er Lunar Fishing Company Limited en Pathway var smíðað hjá Karstensen skipasmíðastöðinni í Skagen árið 2017.

Skipið er 78 metra langt og 15,5 metra breitt og eru kaupin liður í endurnýjun á skipaflota félagsins.

Áætlað er að skipið verði afhent í maí á næsta ári.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd