![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2024/04/akureyri_slippur.jpg?w=1024)
Hér gefur að líta mynd sem tekin var á Akureyri um miðjan tíunda áratug síðustu aldar.
Þarna eru bátar úr Hrísey í aðalhlutverki. Sólfellið og gamla Eyborg hérna nær með Svan SH 335 utan á sér og fjær er nýja Eyborgin sem kom í flotann í aprílmánuði árið 1994.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution