![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2024/04/1556.jpg?w=1024)
Arnarnúpur ÞH 272 heldur hér til veiða frá Húsavík en hann var gerður út af Jökli hf. á Raufarhöfn.
Upphaflega Sölvi Bjarnason BA 65, smíðaður á Akranesi fyrir Tálkna hf. á Tálknafirði, afhentur í marsmánuði 1980.
Sölvi Bjarnason, sem var 405 brl. að stærð, fékk síðar heimahöfn á Bíldurdal, gerður út af Útgerðarfélagi Bílddælinga hf..
Árið 1993 var hann seldur Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar og fékk nafnið Drangur SH 511.
Það er svo í aprílmánuði 1996 sem hann fær nafnið sem hann ber á myndinni, Arnarnúpur ÞH272.
Haustið 1998 fékk Arnarnúpur nafnið Seley SU 210 og var í eigu Samherja til ársins 2004 er skipið var selt utan í brotajárn.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution